Færsluflokkur: Bloggar
3.10.2011 | 22:13
Gott hjá Bjarna Benediktssyni
Hann lýsti á þingfundinum í kvöld (sem sjónvarpað var) furðu sinni á því að sumir þingmanna skyldu ekki hafa sótt guðsþjónustuna við þingsetninguna í gær. Hann sagði réttilega að Þetta væri gömul og góð hefð sem rétt væri að viðhalda. Við þetta vil ég bæta: Hvernig getur það skaðað þingmenn að hlusta á góða kristna predikun og syngja uppbyggilega sálma? Í hvorutveggja er að finna það sem getur eflt mannvirðingu og kærleika, réttsýni og heiðarleika og allt þetta er nauðsynlegt til að endurreisa þjóðfélagið úr rústum hrunsins. Telja sumir þingmanna sig ekki þurfa að heyra slíkan boðskap? Og þótt þeir séu ekki í þjóðkirkjunni, geta þeir samt ekki sætt sig við, samstöðunnar vegna, að sækja messuna? Ekki er ég í þjóðkirkjunni, en ég tel þó rétt og gott að þingmenn fari til guðsþjónustu áður en þingið er sett.
Bjarni lét einnig í ljós vonbrigði með þá hótun forsætisráðherra sem hún lét falla á síðasta þingi að hún hafi hugleitt að segja sig úr þjóðkirkjunni. Þetta gerði hún þegar henni líkaði ekki stefna og gjörðir biskups ef ég man rétt. Tengsl þjóðarinnar (og forystu hennar) og þjóðkirkjunnar eru á margan hátt mjög sterk. Með þessum orðum Jóhönnu er hún að senda kristnu fólki kalda kveðju. Tengsl forystu þjóðarinnar og stofnana hennar við kristinn trúararf og viðhorf eru mikilvæg kjölfesta sem ekki má minnka heldur styrkja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.10.2011 | 12:06
Er landið að verða stjórnlaust?
Af fréttum að dæma er komið mikið los á stjórnkerfið og ólga er meðal embættismanna. Þúsundir fjölskyldna og hundruð félaga og fyrirtækja eru í miklum skuldavanda. Ráðamenn og aðrir stjórnendur, já reyndar þjóðin öll, þarf að leita aftur sinna kristnu róta. Þar er að finna siðferðisreglur, sem munu rétta af þjóðarskútuna ef farið verður eftir þeim.
Nú eru við völd fjölmargir sem fóru á mis við kristilegt uppeldi, en fengu í staðinn veraldlegan hugsunarhátt sem lætur sig litlu skipta hvort Guð sé til. Ef manninum finnst hann ekki þurfa að standa heilögum Guði reikningskil gjörða sinna, er stutt í að hann fari að misnota aðstöðu sína og skara eld að eigin köku á kostnað annarra. Það er einmitt ástand dagsins í dag.
Margir af minni kynslóð fóru á sínum tíma í sunnudagaskóla kirkjusafnaðanna eða í KFUM/KFUK og lærðu þar að bera virðingu fyrir Guði og orði hans og koma vel fram við aðra. Mín kynslóð brást hins vegar í uppeldishlutverkinu. Hún gætti ekki að því að hennar afkomendur sæktu barnastarf kirkjunnar og færu í kristilegt æskulýðsfélög. Þannig óx úr grasi kynslóð sem er óviss í trúmálum, les sjaldan eða aldrei Guðs orð og kann tæpast að biðja ....og það er einmitt að stórum hluta kynslóðin sem fer með völdin í landinu í dag. Er hægt að búast við því að fólk sem ekki hefur verið innrætt kristilegt siðgæði -sem er það besta í heimi- geti stjórnað landinu svo vel sé og komið fram við þegnana af virðingu og sanngirni? Það held ég ekki.
Æðstu stjórnendur landsins, forsætisráðherra og fjármálaráðherra, tala sjaldan eða nánast aldrei um gildi kristinnar trúar. Það eru aðrar hugsjónir og viðmið sem virðast þeim hugstæðari. Er það kannski húmanisk veraldarhyggja sem kærir sig kollátta um tilvist Guðs og afskipti hans af okkur? Þegar maðurinn snýr baki við Guði og lætur stjórnast af veraldlegum viðhorfum, minnkar virðingin fyrir öðru fólki og menn fara að nota hvert tækifæri til að koma sínu fram hvað sem það kostar. Kannski er það einmitt það sem einkennir framferði þessara æðstu ráðamanna? Hvers vegna er þeim ekki meira umhugað að standa við loforð sín og bjarga fjölskyldum og nytsömum fyrirtækjum úr skuldafjötrunum og vinna þannig að viðreisn þjóðarinnar? Ég bara spyr?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2011 | 23:17
Safnaðarstarfið farið á fullt
Sunnudagssamkomur Íslensku Kristskirkjunnar eru nú kl hálftvö á sunnudögum, en síðast liðna vetur hafa þær verið kl 11 f.h. og kl.20. Þessi nýji tími hefur sannað sig að henta fólki betur, enda hafa guðsþjónusturnar í síðasta mánuði og í dag (su.2. okt.) verið vel sóttar.
Barnastarf er á sama tíma og guðsþjónusta hinna fullorðnu og er það í höndum þjálfaðra starfsmanna sem sjá til þess að barnastundirnar eru skemmtilegar og uppbyggilegar fyrir börnin.
Auk guðsþjónustanna á sunnudögum er unga fólkið í söfnuðinum með sínar samverur á föstudagskvöldum kl 20 og hittist þar góður hópur í viku hverri.
Við finnum fyrir meðbyr og vaxandi áhuga á safnaðarstarfinu og bjóðum öllum áhugasömum að koma í heimsókn og kynna sér hvað við erum að gera og slást í hópinn. Allir eru velkomnir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Friðrik Schram
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar